Microsoft Dynamics AX (áður Microsoft Axapta) er sveigjanleg viðskiptalausn sem gerir þér og þínu fólki kleift að taka traustar viðskiptaákvarðanir. Microsoft Dynamics AX vinnur eins og kunnuglegur Microsoft hugbúnaður eins og Microsoft Office og Microsoft SQL Server. Þar af leiðir að þú getur byggt á fjárfestingum í kerfum og hugbúnaði sem kann þegar að vera í notkun auk þess sem kunnuglegt vinnuumhverfið auðveldar notendum að hugsa minna um tæknileg atriði og leggja meiri áherslu á rekstrarmarkmiðin.
Microsoft Dynamics AX inniheldur víðtækar aðgerðir sem auðvelda sjálfvirkni og einfalda ferla sem tengjast fjárhag, tengslastjórnun, almennum rekstri, mannauðsstjórnun og aðfangakeðjum. Þessar aðgerðir tengja saman fólk, ferla og tækni hvar sem er í heiminum. Með þessum hætti stuðlar Microsoft Dynamics AX að aukinni framleiðni og skilvirkni innan fyrirtækisins þannig að þú nærð auknum árangri í viðskiptum.
Microsoft Dynamics AX er heildarlausn sem lagar sig að vexti fyrirtækisins þíns. Þú getur notað þær aðgerðir sem þig vantar núna og bætt við aukinni virkni eftir því sem þarfirnar breytast og aukast. Með MorphX þróunarumhverfinu geta forritarar hannað, breytt og þýtt á einum skjá—og séð breytingarnar birtast á nokkrum mínútum.
Auðvelt að innleiða, sérsníða og breyta
| • | Notar sömu útgáfu af kóða fyrir biðlara á vef og í Microsoft Windows sem getur gert forritun einfaldari og ódýrari og dregið úr kostnaði við upplýsingakerfi. |
| • | Lagskipt tækni Microsoft Dynamics AX gerir að verkum að auðvelt er að búa til og viðhalda aðlögunum. Hægt er að sérsníða eitt lag án þess að það hafi áhrif á virkni annara laga. Þetta þýðir að hægt er að aðlaga og uppfæra lausnina á lengri tíma með minni röskun á rekstri, áhættu og kostnaði. |
| • | Microsoft Dynamics AX vinnur eins og kunnuglegur Microsoft hugbúnaður eins og Microsoft SQL Server, Microsoft SharePoint vörur og tækni og Microsoft Office vörur. Það þýðir að starfsfólkið er fljótt að einbeita sér að því sem skiptir mestu máli. |
Vinnur vel með núverandi kerfum
| • | Þar sem kerfið er þróað samhliða öðrum Microsoft hugbúnaði fæst nánari samþætting og samfelld virkni á milli vara eins og Microsoft Windows, Microsoft Office og Microsoft SQL Server 2005. |
| • | Kerfið vinnur með mismunandi skjalasnið sem þróuð eru af Microsoft og notuð í Microsoft Office Outlook, Microsoft Office Word og Microsoft Office Excel. |
| • | Hægt er að tengjast við ytri gagnagjafa með vefþjónustum og staðlaðri tækni eins og Microsoft BizTalk Server, Component Object Model (COM) samþættingu, Microsoft Message Queuing (MSMQ), Simple Object Access Protocol (SOAP), Microsoft .NET Framework, vistuðum stefjum, XBRL og XML. |
Þróuð tækni styður vöxt fyrirtækisins þíns
| • | Þriggja laga hlutbundin högun Microsoft Dynamics AX fléttast við aðra tækni frá Microsoft eins og Microsoft SQL Server sem færir þér mikil afköst og möguleika á auðveldri skölun á innviðum upplýsingatækniumhverfisins þannig að lausnin geti vaxið með fyrirtækinu. |
| • | Ólíkt sumum viðskiptakerfum sem krefjast þess að notuð séu sérstök verkfæri notar Microsoft Dynamics AX stöðluð þróunarverkfæri sem byggja á SQL Server Reporting Services og Microsoft Visual Studio. NET-þróunarumhverfi. Þetta gerir þér kleift að nýta þér strax mikið úrval af stöðluðum samþættingarreglum og þjálfað samþættingarstarfsfólk sem þú getur nýtt þér til að tengjast við viðskiptalausnir viðskiptavina þinna. |
Dæmi
| • | Sjáðu hvernig fyrirtæki sem veitir öryggisþjónustu uppgötvaði að sveigjanleiki Microsoft Dynamics AX gerði innleiðinguna skjóta og auðvelda—og veitti því grunn til að byggja á. Lesa sögu viðskiptavinarins. |
Microsoft Dynamics AX er hannað þannig að auðvelt sé að virkja nýjar starfsstöðvar, tungumál, gjaldmiðla og staðbundnar aðgerðir þannig að fyrirtækið sé fljótt að grípa tækifæri á alþjóðamarkaði. Til dæmis sá heilsugæslufyrirtækið Fresnius að Microsoft Dynamics AX væri hagkvæm og fljótleg leið til að innleiða viðskiptalausnir í dótturfyrirtækjum á heimsvísu.
| • | Microsoft Dynamics AX ræður við margar starfsstöðvar, mörg tungumál og marga gjaldmiðla í 36 löndum og 40 tungumálum auk staðbundinna þarfa vegna skatta, reglugerða og markaða. |
| • | Samhæfni við Unicode þýðir að þú nærð til nýrra svæða og getur flutt gögn á milli margra mismunandi kerfa án þess að eiga á hættu að gögn spillist. Og samhæfni við Unicode gerir samþættingu við dótturfélög þar sem notuð eru tungumál með fjölbita stafamengjum eins og Kína og Japan mögulega. |
| • | Microsoft Dynamics AX gerir þér kleift að veita viðskiptavinum öruggan aðgang að viðskiptaupplýsingunum sem þá vantar yfir Internetið. Þetta auðveldar viðskiptavinum þínum að færa inn sölupantanir og fá stöðu sendinga, reikninga og birgðastöðu allan sólarhringinn, alla vikuna, um allan heim. |
Microsoft Dynamics AX er með tilbúin verkfæri og kerfishluta sem uppfylla þarfir mismunandi starfsgreina. Microsoft vinnur einnig náið með samstarfsaðilum sínum um heim allan við að hjálpa þeim að þróa og færa þér lausnir sem hannaðar eru til að uppfylla þarfir þinnar starfsgreinar.
| • | Microsoft Dynamics AX er með aðgerðir fyrir aðfangakeðjustjórnun eins og stuðning við rafmerki (RFID), birgðalokunarlausn, endurbætt framleiðslu- og dreifingarkerfi og þróaðar samstæðuaðgerðir. |
| • | Auktu virkni Microsoft Dynamics AX með starfsgreinaaðgerðum studdum af Microsoft í Industry Builder áætluninni. |
| • | Fáðu aðgang að þúsundum lausna frá samstarfsaðilum sem uppfylla sértækar þarfir þínar með Lausnaleit Microsoft. |
| • | Notið tilbúnar aðgerðir fyrir skýrslugerð, talnagögn og áætlanagerð. |
| • | Nýttu þér þjónustustjórnunarkerfið sem er ætlað fyrirtækjum sem þjónusta flóknar vélar og búnað reglubundið eða samkvæmt útkalli. |
| • | Microsoft Dynamics AX auðveldar þér að uppfylla nýjar reglugerðir í tilteknum starfsgreinum eins og FDA CFR 21 Part 11 og ESB tilskipanir, með því að tilgreina góða framleiðsluhætti fyrir fyrirtæki í líftækniiðnaðinum. |
Hægt er að laga Microsoft Dynamics AX að sérstökum þörfum framleiðslufyrirtækja. Öflug blanda tilbúinna aðgerða og auðveldra aðlagana þýðir lægri heildareignarhaldskostnað (TCO). Lausnin hefur fjölda aðgerða sem styðja við flókin aðfangakeðjulíkön. Hún hentar sérstaklega vel fyrir framleiðendur sem vinna í blönduðu umhverfi.
| • | Fáðu fljótlegra og áreiðanlegra yfirlit yfir framleiðsluaðföngin sem nauðsynleg eru til að mæta kröfum viðskiptavina með því að gera grófar afkastaáætlanir þar sem tekið er tillit til bæði takmarkaðrar og ótakmarkaðrar afkastagetu og hráefnaáætlana og raða síðan framleiðsluferlum fram eða aftur í tímann. | ||||||||
| • | Afgreiddu sérsniðnar vörur fljótar og á skilvirkari hátt með því að draga úr handavinnu í tengslum við hönnun, áætlanagerð og framleiðslu. | ||||||||
| • | Gerðu vöruhúsaferlin enn betri.
|
Dæmi
| • | Sjáðu hvernig framleiðandi skrautljósa fyrir vörubíla dró úr kostnaði og jók skilvirkni með lausn sem er nógu sveigjanleg til að samrýmast viðskiptaferlum hans og mæta sérþörfum viðskiptavinanna. Lesa sögu viðskiptavinarins. |
Microsoft Dynamics AX er með fjölda fjárhagsaðgerða sem auðvelda þér að sameina reikningsskil við dótturfyrirtæki eða dreifingarmiðstöðvar óháð staðsetningu. Þannig getur þú tekið viðskiptaákvarðanir af öryggi. Microsoft Dynamics AX auðveldar notendum að einbeita sér að störfum sínum með því að veita aðgang að bókhaldi, skýrslugerð og ítarlegum greiningum á því stigi sem samræmist stöðu þeirra.
| • | Þú getur starfað og vaxið um allan heim samhliða því að gera viðskipti innan samstæðunnar sjálfvirkari. |
| • | Hlutverkamiðuð hönnun hvetur til aukinnar framleiðni hjá einstökum notendum. Verkefnamiðað viðmót sem sniðið er að kjörstillingum og hlutverki hvers notanda auðveldar einstaklingum að einbeita sér að því sem skiptir máli í störfum þeirra. |
| • | Hægt er að skilgreina og vinna með fjölda fjárhagsvídda sem auðvelda þér að skipta gögnum í flokka til ítarlegri greiningar. Til dæmis er hægt að greina og mæla fjárhagsgögn eftir kostnaðarstöðum, deildum, svæðum, vörulínum eða öðrum víddum sem hægt er að stofna og sérsníða. |
| • | Ítarlegar fyrirspurnir úr Microsoft SQL Server 2005 Report Builder gera notendum kleift að draga og sleppa gagnaeiningum á hönnunarblöð til að stofna skýrslur sem innihalda lista, línurit eða fylki tengdra gagna. Þegar skýrsla hefur verið skilgreind geta notendur skoðað hana og fengið ítarlegri upplýsingar úr Microsoft SQL Server 2005 Reporting Services Report Builder, Enterprise Portal í Microsoft Dynamics AX eða með öðrum verkfærum sem geta birt skýrslur úr Microsoft SQL Server Reporting Services. |
| • | Búðu til fjárhagsskýrslur með sveigjanlegum skýrslugerðarverkfærum með fjölda valkosta fyrir innflutning og útflutning, þar á meðal XBRL og útprentanir. Þú getur varpað bókhaldslyklinum og víddum í skýrsluuppsetningu sem passar við rekstrarlíkanið þitt. Eða safnað tölum upp í ramma fyrir stefnumiðaða greiningu. |
| • | Hægt er að fylgja reglugerðum með því að setja upp eina samþætta upplýsingaveitu sem uppfærist í rauntíma og viðheldur viðeigandi fjárhagsgögnum sem eftirlitsaðilar krefjast. |
Framboð | Austurríki, Ástralía, Belgía, Bandaríkin, Brasilía, Bretland, Danmörk, Eistland, Finnland, Frakkland, Holland, Indland, Ísland, Ítalía, Japan, Kanada, Kína, Lettland, Litháen, Malasía, Noregur, Nýja-Sjáland, Portúgal, Pólland, Rússland, Síngapúr, Spánn, Suður-Afríka, Sviss, Svíþjóð, Tékkland, Tæland, Tyrkland, Ungverjaland, Þýskaland |
Tungumál | Danska, eistneska, enska (Ástralíu), enska (Bandaríkjunum), enska (Bretlandi), enska (Kanada), enska (Indlandi), enska (Írlandi), enska (Malasíu), enska (Nýja-Sjálandi), enska (Síngapúr), enska (Suður-Afríka), finnska, flæmska, franska, franska (Belgíu), franska (Kanada), franska (Sviss), hollenska, íslenska, ítalska, ítalska (Sviss), japanska, einfölduð kínverska, lettneska, litháíska, norska, portúgalska (Brasilíu), pólska, rússneska, spænska, spænska (Mexíkó), sænska, tékkneska, tyrkneska, tælenska, ungverska, þýska, þýska (Austurríki), þýska (Sviss) |
Kerfiskröfur | Kynntu þér hvaða vélbúnað og hugbúnað þú þarft til að innleiða Microsoft Dynamics AX. Skoða kerfiskröfur. |
Stuðningur | Þjónustustarfsfólk og sjálfshjálparkostir veita sólarhringsaðgang að upplýsingum alla daga. Skoða stuðningsáætlanir. |
Samþætting | Microsoft Dynamics AX vinnur með fjölda Microsoft forrita eins og Microsoft SQL Server, Microsoft BizTalk Server, Microsoft Exchange, Microsoft Office og Microsoft Windows. Skoða hvítbókina Integrating Microsoft Dynamics AX with Microsoft Office and Microsoft. SharePoint |
Viðbótarlausnir | Skoðaðu lista yfir viðbótarlausnir fyrir Microsoft Dynamics AX sem er ítarlegur listi yfir viðbætur sem fá má frá lausnahönnuðum sem vottaðir eru af Microsoft. |