Microsoft Dynamics
Microsoft Dynamics viðskiptalausnirnar (áður Microsoft Business Solutions) byggja á meira en 20 ára reynslu í viðskiptahugbúnaði, eru í notkun hjá 280.000 viðskiptavinum um allan heim ásamt því að vera leiðandi á Íslandi.
Áður þekkt sem Microsoft Business Solutions
Árið 2006 voru hinar þekktu viðskiptalausnir Microsoft sameinaðar undir einn hatt - Microsoft Dynamics. Þær lausnir sem áður voru þekktar sem Microsoft Navision , Axapta og CRM eru nú hluti af sömu fjölskyldu og bera heitin Microsoft Dynamics NAV, Microsoft Dynamics AX og Microsoft Dynamics CRM.
Hvað hefur Microsoft Dynamics uppá að bjóða?
Með traustum og sveigjanlegum viðskiptalausnum Microsoft Dynamics nærðu fram betri yfirsýn og skilvirkni í rekstri fyrirtækisins. Gerðu starfsmönnum þínum kleift að sinna verkefnum betur í notendavænu viðmóti og náðu fram meiri sjálfvirkni í endurteknum verkferlum með Microsoft Dynamics.