
Microsoft Dynamics NAV er áframhaldandi þróun á Navision Financials og Attain sem hafa notið mikillar velgengni um heim allan. Lausnin er sérstaklega hönnuð til að auðvelda vinnuferla í litlum og meðalstórum fyrirtækjum í sambandi við fjármálastjórnun, vörustjórnun og rafræn viðskipti. Lausnin uppfyllir þarfir þínar, óháð því hvaða sérkröfur þú hefur um viðskiptaferla, fjármálastjórn og stjórnun. Þú færð einnig heilmörg glæný vefverkfæri sem hjálpa til við viðskiptamanna- og lánardrottnastjórnun, rafræn viðskipti, netaðgang að kerfinu og rafræn skjalaskipti. Microsoft Dynamics NAV gefur möguleika á sjálfvirkri útprentun skýrslna, fjöldabókunum, uppfærslu- og viðhaldskeyrslum, meðhöndlun á tengslum og samskiptum við viðskiptavini (CRM) og margt fleira.
Ef þú vilt auðvelda þér að grípa ný viðskiptatækifæri borgar sig að gefa öllum starfsmönnum greiðan aðgang að þeim upplýsingum sem skipta máli og stöðugt eru uppfærðar.
Stýrðu fyrirtækinu í þá átt sem þú vilt. Með því að gera greiningu þvert á tvær mismunandi víddir eins og t.d. svæði, deildir og verkefni færð þú góða yfirsýn um það hvort fyrirtækið nær markmiðum sínum og hvar er mögulegt að bæta úr.
Tryggðu hámarksvirði viðskiptatengsla þinna. Tengslastjórnun (Customer Relationship Management) með Microsoft Dynamics NAV gerir þér kleift að greina, afla, varðveita og stjórna arðbærum viðskiptatengslum.
Gefðu starfsmönnum betra og virkara vinnuumhverfi. Employee Portal gefur hverjum einstökum starfsmanni aðgang að mikilvægum upplýsingum á einstaklingsbundinni heimasíðu. Með Microsoft Dynamics NAV er auðvelt að búa til einstaklingsbundnar gáttir sem gefa notendum skjótan aðgang að mikilvægum upplýsingum svo að þeir eru fljótir að grípa ný viðskiptatækifæri.
Lestu meira um þá möguleika sem Microsoft Dynamics NAV gefur þér og fyrirtæki þínu hér.