Leyfismál hjá Microsoft byggja á einfaldri reglu „eitt leyfi, ein vél“, sem þýðir að notkunarréttur á keyptu hugbúnaðarleyfi gildir eingöngu gagnvart einni vél. Vilji viðkomandi nota sama hugbúnað á öðrum vélum þarf sá hinn sami að kaupa leyfi gagnvart hverri vél sem hugbúnaðurinn fer inn á. Brot á þessari einföldu reglu er brot á höfundarrétti og brot á höfundarrétti er lögbrot. Lögbrot er eins og allir vita refsivert athæfi og enginn vill í raun verða uppvís að slíku (ef þú stelur hugbúnaðinum getur þú allt eins stolið tölvunni líka). Eftir því sem hugbúnaðariðnaðurinn hefur vaxið hérlendis hefur flestum orðið ljóst hversu alvarleg brot af þessum toga í raun eru og hversu mikilvægt er að höfundarréttur sé virtur. Þessi þróun hefur leitt til þess að hugbúnaðarstuldur hefur minkað mikið hérlendis undanfarin ár og er það vel. Samt eigum við langt í land með að standa jafnfætis þeim þjóðum sem við viljum yfirleitt bera okkar saman við. Markmið Microsoft á Íslandi er að aðstoða fyrirtæki við að koma þessum málum í lag og þar með að færa okkur nær nágrannalöndunum hvað þetta varðar.


Ert þú að nota löglegt leyfi? Ef þú vilt aðstoð við að koma þessum málum í lag hafðu þá samband við okkur eða endursöluaðila og við aðstoðum þig við að fara yfir málin og finna hagkvæmustu lausnina fyrir þitt umhverfi og þínar þarfir.
Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar.