![]() |
|
Kæru samstarfsaðilar, Við tókum saman lista yfir handhæg tölvupóstföng og símanúmer sem hægt er að tala við beint og þið sem samstarfsaðilar hafið aðgang að. Við mælum með því að þið sendið þennan lista á alla þá sem samskipti þurfa að hafa við Microsoft. Microsoft Ísland fær mörg símtöl um ýmsa hluti sem snúa að samstarfsaðilum en oft beinum við mörgum af þessum spurningum beint áfram til kollega okkar í Danmörku eða Evrópu. Málið er hins vegar að þið getið í mörgum tilvikum haft beint samband við þessa aðila. Það tryggir oft skjótari svör en ella. Einnig má finna gagnlegar upplýsingar um aðstoð á vefslóðinni https://partner.microsoft.com/40001608. Við tókum saman lista yfir handhæg tölvupóstföng og símanúmer sem hægt er að tala við beint og þið sem samstarfsaðilar hafið aðgang að. Við mælum með því að þið sendið þennan lista á alla þá sem samskipti þurfa að hafa við Microsoft. A general contact number is the regional partner help desk. Call them if you need help +45 44890993 Partner Service Center Veitir aðstoð við mál tengd Microsoft Partner Program. Í flóknari tilvikum þar sem upp koma vandamál varðandi skráningar samstarfsaðila er hægt að hafa samband með því að hringja í íslenskt númer 5106928 (svarað á ensku). Gold Certified Partner goldcert@msdirectservices.com Certified Partner certpartner@msdirectservices.com Registered Member / Other regmember@msdirectservices.com MSDN Support Hægt er að fá aðstoð vegna áskriftar á MSDN með því að hringja í númerið 5106924 (svarað á ensku). MSDNIC@eu.subservices.com Professional Support Þegar upp koma tæknileg vandamál eiga flestir samstarfsaðilar innifalið í "partner program" ákveðin fjölda skipta sem þeir geta nýtt sér til að leysa tæknileg vandamál sem upp koma. Til þess að nýta sér þessa þjónustu þá hafið þið samband í númerið 5106929 (svarað á ensku). Aðstoðar gegn gjaldi og athugið að í gegnum þetta númer er hægt að fá hotfix send. Tele-Partner Technical Specialists Oft er það þannig að í söluferlinu á einhverri vöru vantar ykkur upplýsingar um vöruna út frá tæknilegum atriðum. Tele-Partner Technical Specialistar (T-PTS) eru aðilar með mikla þekkingu á viðkomandi vörum og geta svarað tæknilegum pre-sales spurningum um vöruna. Athugið að hér er ekki verið að tala um support við uppsetningar eða villur sem upp koma, heldur tæknilega spurningar sem fram koma þegar það er verið að selja vöruna. Sér í lagi geta þessir sérfræðingar hjálpað ykkur ef þið eruð að glíma við samkeppni við aðrar vörur. Til þess að hafa samband við T-PTS þá hringið þið í síma 5106927 og veljið pre-sales support, eða sendið tölvupóst á dkpspts@microsoft.com. FPP Support Þeir notendur sem kaupa hugbúnað í pökkum (FPP – Fully Packaged Products) geta fengið þjónustu á þeim með því að hringja í þjónustuver Microsoft í síma 5106920. Í þetta númer er allra jafna svarað á íslensku. Activation Support Til þess að virkja (activate) hugbúnað þá er hringt í síma 5106925. Á skrifstofutíma er svarað í þetta númer á íslensku en utan skrifstofutíma (24 tíma á sólarhring) er svarað á ensku. MCP support Alla aðstoð varðandi MCP prógramið eins og status, stig og nafnabreytingar og fleira má fá með því að hringja í síma 5106930 (svarað á ensku). emeamcp@msdirectservices.com Microsoft Volume Licensing Support Fyrir fyrirtæki með heildarsamninga MYO, OSL, Open Value og OVS. Svara öllum spurningum varðandi samning viðskiptavina við Microsoft, nafnabreytingar, aðstoð við að virkja námskeiðisávísanir og fleira). Íslenskt númer 5106922 (svarað á ensku). mvlshelpe@msdirectservices.com Eopen licensing Fyrir fyrirtæki sem hafa keypt sín leyfi á hefðbundin hátt í Open License. Svara spurningum sem tengjast þeim leyfum. Íslenskt númer 5106923 (svarað á ensku). eopen@microsoft.com TechNet Support Aðstoðar þá sem eru með TechNet áskrift. Íslenskt númer 5106926 (svarað á ensku). technet@eu.subservices.com XBOX Support Íslenskt númer 5106921 en svarað á ensku og á opið á dagtíma í USA. Þjónusta við þá sem hafa keypt XBOX og XBOX360. Fáðu aðstoð við að leysa viðskiptavina- og samstarfsaðilaáskoranir Í gegnum veftólið Response Management through Partner (RMtP - þarfnast innskráningar) getur þú sett inn áskoranir tengdar kerfinu. Erindið er áframsent á net sérfræðinga, sem munu þar næst vinna að lausn fyrir þig. Athugaðu vel að þetta verkfæri kemur ekki í stað þeirra verkferla sem þegar eru til staðar t.d. tæknilegar spurningar sem þú getur fengið aðstoð með hjá tækniaðstoð. Leyfismál Microsofts global Partner Portal er nú með gagnvirkar leyfisleiðbeiningar. Þessar upplýsingar gera það léttara að finna rétta leyfið fyrir viðskiptavininn. Einnig getur þú skoðað mismunandi leyfi Microsoft á TechNet-síðunum. Þetta er bara ein leið af mörgum sem Microsoft er nú að vinna að til þess að gera leyfisheiminn einfaldari fyrir þig og viðskiptavininn. Hefur þú þörf fyrir meiri stuðning? Hér eru nokkrir linkar sem gætu gagnast þér MSPP stuðningsvalkostir, Partner Program FAQ, Windows Live ID Support, Vandamálalausnir FAQ, Online Concierge FAQ. Það er von mín að þessi samantekt aðstoði ykkur í samskiptum ykkar við Microsoft bæði hér heima og erlendis. kveðja, Hulda |
| Til baka |