Styttist í lok fjárhagsárs Microsoft Íslandi
Brátt verður flautað til leiksloka, ekki bara í evrópukeppninni í fótbolta heldur eins og þið flest vitið endar fjárhagsár Microsoft nánast á sama augnabliki. Eini munurinn er að við spörkum boltanum strax aftur út til að hefja næsta fjárhagsár sem við köllum FY09. Áður en það gerist þurfum við á öllum ykkar kröftum að halda til að ljúka þeim viðskiptum sem mögulega hægt er áður en flautið heyrist. Það er nefnilega þannig að þrátt fyrir það að við eigum ekki lið í evrópukeppninni í knattspyrnu þá stöndum við í úrslitum í evrópukeppni Microsoft. Mikilvægi þess að vinna úrslitaleikinn er gífurleg, ekki bara fyrir okkur hjá Microsoft heldur einnig og jafnvel meiri fyrir ykkur ágætu samstarfsaðilar þar sem sigurinn opnar okkur nýjar dyr til aukinnar samvinnu og fjárfestinga.

Þegar litið er til baka get ég ekki annað sagt að þið eigið miklar þakkir skilið hversu langt við höfum náð og allar ykkar ábendingar hafa hjálpað okkur að stilla okkar starfsemi enn frekar. Ég lýk þessu á að treysta því að í sameiningu náum við evróputitlinum sem gefur okkur góða ástæðu til að halda veglega þakkargjarðarhátíð ykkur til heiðurs.

Áfram Ísland

Halldór Jörgensson
Framkvæmdastjóri Microsoft Íslandi

Til baka