Velkomin á fréttaveitu Microsoft Íslandi. Það er metnaður fyrirtækisins að bjóða viðskiptavinum uppá fréttir og tilkynningar sem skipta máli í heimi þekkingariðnaðar.
21. nóvember 2011
Microsoft og Tölvmiðlun hafa gert með sér samning um þróunarsamstarf sem er stærsti samningur sinnar tegundar sem Microsoft hefur gert við íslenskt hugbúnaðarhús. Skoða nánar
4. júlí 2011
Maritech tilkynnir með stolti að fyrirtækið hefur hlotið verðlaunin „Samstarfsaðili ársins 2011“ hjá Microsoft Íslandi. Verðlaunin eru veitt þeim sem taldir eru hafa skarað fram úr í þróun og kynningu á Microsoft-tengdum lausnum síðasta ár. Skoða nánar
28. janúar 2011
Íslensk þýðing á Office 2010 skrifstofuhugbúnaðinum kemur út í dag og geta þeir sem þegar eiga Office 2010 nálgast hana sér að kostnaðarlausu á vefnum microsoft.is. Skoða nánar
25. júní 2010
Microsoft hefur gefið út prufuútgáfu af Windows Live Essentials-hugbúnaðarpakkanum. Það er ókeypis hugbúnaður sem gerir það einfaldara fyrir almenning að búa til og dreifa myndum og myndskeiðum, skipuleggja tölvupóst og halda sambandi við vini. Skoða nánar
16. júní 2010
Microsoft hefur gefið út nýjustu útgáfu Office-skrifstofuhugbúnaðarins, Microsoft Office 2010. Þar með er komin út ný kynslóð algengustu skrifstofuforrita sem notuð eru í heiminum. Skoða nánar
8. maí 2010
Microsoft Íslandi hefur samið við höfuðstöðvar Microsoft um áframhald svokallaðs evrugengis Microsoft fram til júníloka á þessu ári. Hljóðar samkomulagið um að viðskipti Microsoft við íslensk fyrirtæki, stofnanir og almenning verði gerð á evrugenginu 150 krónum. Skoða nánar
23. október 2009
Windows 7, nýjasta stýrikerfi Microsoft, var gefið út þann 22. október. Grunnhugmyndin við hönnun stýrikerfisins var að gera alla tölvunotkun fólks auðveldari. Skoða nánar
22. september 2009
Nú hefur Windows 7 RTM útgáfa verið sett í vinnslu og er sú útgáfa væntanleg á markað þann 22. október n.k. Eftir vel heppnaðar prófanir, á fyrst Windows 7 Beta og svo Windows 7 RC, á þetta að vera loka útgáfa tilbúin fyrir alla markaði.
12. júní 2008
Nú er loksins mögulegt að sækja íslenskt notendaviðmót á Office 2007. Ef þú hefur áhuga á að prófa þá mælum við með að þú farir á Office síðu Microsoft Íslandi
4. febrúar 2008
Microsoft Íslandi hefur sett á markað tungumálapakka sem íslenskar notendaviðmót Windows Vista stýrikerfisins. Án efa hafa margir beðið spenntir eftir þessum möguleika og hvetjum við fólk til að prófa pakkann.
2. janúar 2008
Hefur þú áhuga á að fylgjast með viðburðum, námskeiðum og nýjustu fréttum af vörum Microsoft ? Ef svo er skráðu þig og/eða þitt fyrirtæki á póstlista hjá Microsoft og vertu með.