Yfirfærsla í Windows Vista er orðin enn auðveldari. Hvort sem þú ætlar að kaupa nýja PC-tölvu eða uppfæra á tölvunni sem þú átt fyrir erum við með upplýsingarnar sem þú þarft til að þetta verði átakalaus breyting.
Windows Vista er fáanleg í öllum helstu tölvu og hugbúnaðarverslunum um land allt.
Er Windows XP tölvan þín tilbúin fyrir Windows Vista? Sæktu og keyrðu Windows Vista Upgrade Advisor til að finna út hvaða gerð af Windows Vista hentar þér og til að sjá hvort tölvan sem þú átt er tilbúin að keyra hana.
Fyrir marga hefjast kynnin af Windows Vista með því að kaupa nýja PC-tölvu. Hjá öðrum byrja þau með því að uppfæra tölvuna sem þeir eiga, og það er mikilvægt að þekkja og skilja uppfærslukostina í fyrri útgáfum af Windows.
Finndu vörur samstarfsaðila og sértilboð á Windows Vista-tengdum vél- og hugbúnaði sem þú þarft. Eða, kannaðu Windows Vista svæðið á markaðnum, Windows Marketplace.
Þegar þig vanhagar um meira af því sem Windows Vista hefur að bjóða er hægt að uppfæra í aðra gerð án þess nokkurn tíma að fara að heiman eða úr vinnunni. Notkun Windows Anytime Upgrade er þægileg og hagkvæm leið til að auka möguleikana með Windows Vista.
Finndu vörur samstarfsaðila og sértilboð á Windows Vista-tengdum vél- og hugbúnaði sem þú þarft. Eða, kannaðu Windows Vista svæðið á markaðnum, Windows Marketplace.
Svo tryggt sé að Windows Vista nýtist þér til fulls skaltu gæta þess að vélbúnaður og hugbúnaður sé merktur með Windows Vista merkinu. Skoðaðu merkin og finndu út hvað hvert og eitt merkir.
Windows Easy Transfer hjálpar þér að flytja skrár og stillingar sem nú eru geymdar á PC-tölvunni þinni sem keyrir Windows 2000, Windows XP, eða jafnvel Windows Vista yfir á nýju Windows Vista tölvuna þína.
Viltu nýja tölvu svo að þú getir nýtt þér það sem Windows Vista hefur að bjóða? Líttu á nokkrar nýjustu gerðirnar sem koma á markað um leið og Windows Vista í myndasafninu okkar og í myndbandasafninu okkar.
Ósvikið eintak af Windows Vista er stutt af Microsoft og færir þér það öryggi, afkastagetu og þægindi sem þú væntir af Windows. Hvort sem er heima eða í smáfyrirtækinu er notkun ósvikins eintaks af Windows Vista rétti kosturinn.