Windows
Windows Vista útgáfur

Windows Vista útgáfur - Yfirlit

Það er sama hvernig þú notar tölvuna—allt frá skemmtun heima fyrir til starfa í atvinnulífinu—það er til gerð af Windows Vista sem er sú rétta handa þér.

Windows Vista Home Basic

Windows Vista Home Basic er kjörið fyrir heimili sem þurfa á helstu tölvuaðgerðum að halda, svo sem eins og tölvupósti, internetsambandi og myndaskoðun. Það er auðvelt í uppsetningu og viðhaldi og fljótlegt er að finna það sem leitað er að á tölvunni og internetinu en um leið er umhverfið öruggara og hjálpar þér að verjast í viðsjálum heimi.

Windows Vista Home Premium

Windows Vista Home Premium er sú gerð sem hentar best fyrir borðtölvur og fartölvur á heimilum. Hönnunin er frábær og gefur þér nýja yfirsýn og um leið færðu þá afkastagetu, skemmtun og öryggi sem þú þarft á PC-tölvu heima fyrir og á ferð og flugi.

Windows Vista Ultimate

Windows Vista Ultimate er valkosturinn fyrir þá sem vilja allan pakkann. Þú skiptir fyrirhafnarlaust milli leiks og vinnu með fullkomnustu gerðinni af Windows Vista. Ultimate hefur aflið, öryggið og hreyfanleikann sem sem þarf í vinnuna og allar afþreyingaraðgerðirnar sem þú vilt hafa þér til ánægju.

Windows Vista Business

Windows Vista Business er fyrsta gerðin af Windows sem er hönnuð sérstaklega til að mæta þörfum smáfyrirtækja. Þú eyðir minni tíma í mál sem snerta tæknina—svo þú getur varið meiri tíma í árangursríkan rekstur. Windows Vista Business er hárrétti kosturinn fyrir rekstur þinn í dag og á morgun.

Windows Vista Enterprise

Windows Vista Enterprise er hannað með það í huga að lækka verulega kostnað og áhættu í upplýsingatækni og hentar því stórum, alþjóðlegum fyrirtækjum með flókin upplýsingakerfi.

Bera saman lykilaðgerðir í útgáfum Windows Vista.

Flyttu með einföldum hætti allt innihald og stillingar af gömlu tölvunni þinni yfir á nýju Windows Vista tölvuna.

Lestu meira um hvernig hægt er að uppfæra í Windows Vista.

Windows Vista

Fáðu aðstoð, fáðu svörin
Fáðu aðstoð, fáðu svörin
Fáðu vandamálagreiningu (troubleshooting) eða fáðu samband við Microsoft hjálpina þér til aðstoðar.
Fáðu Windows uppfærslur sendar í netpósti
Fáðu Windows uppfærslur sendar í netpósti
Vertu með þeim fyrstu til að fá leiðbeiningar, fréttir og niðurhal. Fáðu Exploring Windows fréttabréf.
Skráðu þig í samfélagið
Skráðu þig í samfélagið
Þú tengist öðrum í gegnum blogg, spjall, webcasts, greinar og viðburði.
Microsoft
© 2009 Microsoft