Windows
Þú þarft aðeins að skoða einu sinni

Skoða kynningarnar

Mobile  

Drífðu hlutina af og njóttu lífsins! Nú er auðveldara og fljótlegra en nokkru sinni fyrr að finna, nota, stjórna og samnýta upplýsingar á tölvunni eða á vefnum.

Sjáðu allt sem þú vinnur við betur með Windows Aero, og skiptu eldsnöggt milli glugga eða verka með Windows Flip 3D ( Live Thumbnails). Þú finnur auðveldlega það sem þú leitar að—þegar þú þarft á því að halda―með Instant Search og forskoðun með live icon sem sýna raunverulegt innihald skráa. Auktu svo enn afköst þín með örskjótum aðgangi að öllum þeim upplýsingum sem þú vilt með því að nota Windows Sidebar and Gadgets. Settu þessi þægilegu og lipru smáforrit á skjáborðið og fáðu upplýsingar birtar í snatri.

Slakaðu á, öryggi og heilsa tölvunnar er tryggð, hvað sem þú ert að gera, svo þú getur einbeitt þér að því sem þér finnst skemmtilegast.

Afritaðu og geymdu allt efnið sem þú ert með á PC-tölvunni—þessar ómetanlegu stafrænu myndir, mikilvæg skjöl, fjölskyldumyndböndin tónlistina sem þú hefur haft fyrir að afrita—með Windows Backup. Þú getur verið rólegri og öruggari á Netinu með því að nota Windows Internet Explorer 7, sem hjálpar til við að verja tölvuna og persónulegar upplýsingar þínar gegn spilliforritum, fölsuðum vefsetrum og veiðiforritum á Netinu. Með miðlægu foreldra eftirliti, er auðveldara að stjórna öryggi fjölskyldunnar með því t.d. að ákveða aðgang að vissum internet-setrum, hversu mikið megi spila leiki og jafnvel ákveða hversu langan tíma börnin mega vera í tölvunni á viku. Með Windows Defender á vakt yfir tölvunni getur þú sloppið við sprettiglugga, hæga vinnslu og öryggisógnir sem stafa af njósnaforritum og öðrum óvelkomnum hugbúnaði sem reynir að komast inn á tölvuna þína.

BREIDDU úr þér með Media Center! Víkkaðu út möguleika þína á að njóta og leyfa öðrum að njóta með þér sjónvarps, mynda, tónlistar og leikja—inni í stofu eða hvar sem er í húsinu—allt með því að smella á fjarstýringu!

Windows Media Center opnar þér nýjar leiðir til að skoða upptökur úr sjónvarpi, hlusta á tónlist, skoða ljósmyndir, fjölskyldumyndbönd og DVD-diska á tölvunni. Hvort sem þú situr fyrir framan tölvuna og notar músina eða situr í sófanum og beitir Windows Media Center fjarstýringu getur þú hallað þér aftur og notið alls þessa, á þeim tíma sem þú ákveður. Það þarf ekki heldur að takmarka notkun Windows Media við PC-tölvuna. Með því að nota Xbox 360 sem tengist þráðlausu eða fasttengdu heimaneti er hægt njóta þess sem Windows Media Center hefur að bjóða í sjónvarpi í öðrum herbergjum á heimilinu.

Taktu það allt með þér! Þú getur notið afþreyingarefnis og tengst upplýsingum þínum og deilt öllu með vinum og ættingjum meðan þú ert á ferð og flugi.

Taktu allt þitt afþreyingarefni með þér―nánast hvert sem þú ferð― með Windows Media Center á fartölvu. Þú getur stillt allt það sem þarf til að halda þér í sambandi meðan þú ert á ferðalagi—allt frá einum stað―með Windows Mobility Center. Ef þú notar Windows Sync Center hjálpar það þér að tryggja að öll þín tónlist, tengiliðir og myndir sé samstillt við önnur fartæki þín svo að þau séu tilbúin að leggja af stað þegar þú ert það. Network and Sharing Center gefur auðveldan aðgang að þráðlausum netum sem þú notar, hvort sem þú ert heima eða úti í bæ á uppáhalds Netkaffinu, svo þú ert í sambandi og afkastar meiru hvar sem þú ert. Og, meðan þú ert á ferðinni getur þú unnið á þann hátt sem þú vilt með snertitækni og stafrænu bleki og handskrift. Windows töflu og snertitækni (Tablet and Touch Technology) gerir þér kleift að sníða minnisbókina algerlega að þínum þörfum.

Sjáðu meira um það hvernig Windows Vista gerir notkun PC-tölvunnar auðveldari, öruggari og skemmtilegri nánast hvenær sem er og hvar sem er.

Sitja eftirlætisljósmyndirnar þínar fastar inni í PC-tölvunni eða ertu enn að basla við að koma saman myndbandinu? Windows Vista er svarið. Með einföldum tækjum til að klippa og skapa opnast þér greiðari og ánægjulegri leið til að deila ánægjulegum minningum með öðrum!

Sýningartíminn eða þinn tími? Fram undir þetta hefur það oft verið annaðhvort eða. Með Windows Vista getur þú ákveðið ekki bara hvað þú horfir á heldur hvenær og hvar þú horfir á það. Velkomin í framtíð afþreyingarinnar!

Það verður enn auðveldara að hrífast af tónlistinni. Geymdu öll lögin þín, halaðu niður nýja tónlist og skemmtu þér yfir nýjum aðgerðum sem auðvelda þér að finna, blanda og njóta laganna á þann hátt sem þér líkar.

Windows Vista er með frábært leikjaumhverfi. Það er auðveldara og meira spennandi en nokkru sinni fyrr að spila eftirlætisleikina með Windows Vista. Veldu úr miklu úrvali leikja og prófaðu ótrúlega þrívíddargrafík í öruggara leikjaumhverfi fyrir alla fjölskylduna.

Tíminn er dýrmætur. Um fram allt þarftu kerfi sem er einfalt, þægilegt, eðlilegt og jafnvel skemmtilegt—svo þú fáir það gert sem gera þarf og getir einbeitt þér að því sem mestu máli skiptir í lífinu.

Nú er öruggara og auðveldara að vera í sambandi við fólkið sem skiptir mestu máli. Hvort sem þú kýst tal, hreyfimynd, ljósmyndir eða texta—þú færð ótrúlega fjölbreytta valkosti með Windows Vista.

Nýju endurbæturnar varðandi öryggi, hreyfanleika og afköst í Windows Vista Business hjálpa þér að koma verkunum frá svo að þú getir einbeitt þér að því sem mestu máli skiptir, rekstrinum.

Viðskiptagögn þín eru ómetanleg—Windows Vista Business er með þróaðar, þægilegar og sjálfvirkar gagnavarnar- og öryggisaðgerðir svo þú þarft minna að hugsa um gögnin en getur einbeitt þér að viðskiptavinunum.

Með Windows Vista Business er auðveldara og fljótlegra en nokkru sinni fyrr að finna, nota, stjórna og samnýta upplýsingar á PC-tölvunni, þjóninum eða á vefnum.

Fyrirtækið þitt er ekki lokað inni í einni skrifstofu—það fer hvert sem þú ferð. Með Windows Vista Business opnast einfaldar leiðir til tenginga, samskipta, netvinnu og til að gera hlutina—hvort sem þú ert inni á skrifstofunni eða úti á vegunum.

Windows Vista Business leggur traustan grunn í upplýsingatækni og er skynsamleg fjárfesting sem fyrirtæki þitt hefur hag af í dag og á morgun.



Bera saman lykilaðgerðir í útgáfum Windows Vista.

Flyttu með einföldum hætti allt innihald og stillingar af gömlu tölvunni þinni yfir á nýju Windows Vista tölvuna.

Lestu meira um hvernig hægt er að uppfæra í Windows Vista.

Windows Vista

Fáðu aðstoð, fáðu svörin
Fáðu aðstoð, fáðu svörin
Fáðu vandamálagreiningu (troubleshooting) eða fáðu samband við Microsoft hjálpina þér til aðstoðar.
Fáðu Windows uppfærslur sendar í netpósti
Fáðu Windows uppfærslur sendar í netpósti
Vertu með þeim fyrstu til að fá leiðbeiningar, fréttir og niðurhal. Fáðu Exploring Windows fréttabréf.
Skráðu þig í samfélagið
Skráðu þig í samfélagið
Þú tengist öðrum í gegnum blogg, spjall, webcasts, greinar og viðburði.
Microsoft
© 2009 Microsoft