Reglu á óregluna.
Einfalt er gott. Endurhannað og þjált viðmót færir þér meira af því sem þú þarft og minna af því sem þú þarft ekki. Nýja útlitið fullstækkar það svæði skjásins sem birtir vefsíðuna.
Gerðu meira með því að gera minna.
Opnaðu mörg vefsetur í einum Internet Explorer glugga með flipaflettingu. Þú sérð smámyndir af öllum opnum flipum í einni sýn. Flokkaðu marga flipa saman í einn flipaflokk og vistaðu hann sem eftirlæti.
Prentaðu rétt í fyrstu tilraun.
Internet Explorer 7 hnikar texta sjálfkrafa til svo að prentun verði betri, þannig að allt innihald vefsíðunnar passi á endanlegu prentuðu síðuna. Meðal prentunarkosta eru einnig stillanlegar spássíur, síðuútlit sem er hægt að sérsníða, síðuhausar og -fætur sem er hægt að fjarlægja og breytilegt prentbil.
Fáðu fréttirnar afhentar beint.
Þreytt/ur á að leita að nýjustu fréttum og uppfærslum á vefnum? Internet Explorer 7 getur fært þér nýjustu uppfærslurnar af eftirlætissetrunum þínum. Þú getur gerst áskrifandi að nýjustu RSS-straumum um Internet Explorer 7 og fengið tafarlausan aðgang að sérsniðnum íþrótta-, frétta- og verslunarstraumum svo að þú verður alltaf með nýjustu upplýsingarnar á takteinunum.
Veldu margar leitarvélar.
Leitaðu beint á Internetinu úr vafrarammanum með því að nota eftirlætisleitarvélina þína og skyndileitarreitinn.
Settu öryggið á oddinn.
Ný og traust hönnun Internet Explorer 7 og endurbættar öryggisaðgerðir hjálpa til við að verja þig gegn skaðlegum hugbúnaði og verja persónuleg gögn þínum gegn spilliforritum, fölsuðum vefsetrum og veiðiforritum.