Sjáðu hvernig aðgerðirnar gera Internet Explorer 7 auðveldari í notkun, öruggari og auðveldari að útfæra og stjórna.
|  |  | Endurbætt útlit vafrans gefur hverri vefsíðu sem skoðuð er meira svigrúm fyrir efnið og því nýtist skjárinn enn betur. | Internet Explorer 7 breytir stærð vefsíðunnar sjálfkrafa fyrir prentun, þannig að allt innihald vefsíðunnar passi á endanlegu prentuðu síðuna. Meðal prentunarkosta eru einnig stillanlegar spássíur, síðuútlit sem er hægt að sérsníða, síðuhausar og -fætur sem er hægt að fjarlægja og möguleiki á að prenta aðeins valinn texta.
| Nú er hægt að færa inn vefleit með eftirlætisleitarveitunni í leitarreit í verkfærareininni og sleppa við ruglinginn með margar verkfærareinar. Auðvelt er að velja veitu af fellilistanum eða bæta við fleiri veitum.
| Þú færð skjótan og auðveldan aðgang að eftirlætisatriðum þínum, flipaflokkum, flettiferli og áskriftum að RSS-straumum. Þú getur víkkað eftirlætismiðstöðina út þegar þarf og sett hana á vissan stað svo að aðgangur verði jafnvel enn auðveldari.
|
Internet Explorer 7 finnur sjálfkrafa RSS-strauma á setrum og lýsir upp teikn í verkfærareininni. Með einum smelli á teiknið getur þú skoðað RSS-strauminn og gerst áskrifandi ef þú vilt—þannig að þú fáir sjálfkrafa tilkynningu þegar efnið er uppfært. Þú getur lesið RSS-strauma beint í vafranum, leitað að mikilvægum greinum og síað það sem þú skoðar með leitarorðum eða flokkum sem eiga við setrið.
| Þú getur skoðað mörg setur í einum vafraglugga. Auðvelt er að skipta úr einum glugga í annan með flipum efst í vafrarammanum.
| Auðvelt er að velja og fara milli opinna flipa með því að birta smámyndir af þeim öllum í einum glugga.
| Auðvelt er að flokka flipa og vista í samstæðum flokkum svo að hægt er að opna marga flipa með einum smelli. Auðvelt er að gera flipaflokk að heimasíðuflokki þannig að allur flipaflokkurinn opnist í hvert sinn sem Internet Explorer er ræstur.
| Þú getur stækkað einstakar síður, þar á meðal texta og myndir, til að skoða sérstaklega eitthvert efni eða auðvelda lestur ef sjón er léleg.
|
|
 |  | Þú getur gert óvirkar nær allar ActiveX stýringar til að verja stýringar sem hugsanlega eru viðkvæmar fyrir árásum. Auðvelt er að gera ActiveX stýringar virkar eða óvirkar eins og þarf með upplýsingareininni og viðbótarforritastjóranum (Add-on Manager).
|
Litmerktar tilkynningar birtast við veffangsreinina til að vekja athygli þína á öryggi vefsetra og gagnaleyndarstillingum. Veffangsreinin fær grænan lit á vefsetrum sem eru með ný vottorð með háu tryggingarstigi (High Assurance certificates), en það sýnir að seturseigandinn hefur gert víðtækar auðkennisprófanir. Tilkynningar um veiðforritasíur, heiti vottorða og teiknið með gyllta hengilásnum birtast einnig við veffangsreinina og sjást þannig betur. Auðvelt er að fá birtar nánari upplýsingar um vottorð og gagnaleynd með einum smelli á öryggisstöðureinina.
|
Þessi sía varar þig við og hjálpar þér að verjast hugsanlegum eða þekktum svikavefsetrum og lokar á setrið ef við á. Sían, sem hægt er að setja á og taka af, er uppfærð mörgum sinnum á klukkustund samkvæmt nýjustu öryggisupplýsingum frá Microsoft og mörgum samstarfsaðilum í geiranum.
| Internet Explorer 7 hjálpar til við að hindra að forskriftir á vefsíðum verði fyrir verkun af efni frá öðrum lénum eða gluggum. Þessi bætta öryggisráðstöfun gefur aukna vörn gegn spilliforritum með því að hindra að skaðleg vefsetur notfæri sér veikleika annarra vefsetra eða valdi því að þú halir niður óæskilegt efni eða hugbúnað.
| Þú getur hreinsað upp síður í skyndiminni, aðgangsorð, eyðublaðagögn, dúsur og feril, allt úr einum glugga.
| Allir gluggar, hvort sem þeir eru sprettigluggar eða venjulegir, sýna þér veffangsreinina og hjálpa þér þannig að verjast því að skaðleg setur hermi eftir traustum setrum.
| Til viðbótar stuðningi við alþjóðleg lénsheiti í vefföngum lætur Internet Explorer þig einnig vita þegar að því er virðist sams konar stafir í veffanginu eru ekki birtir á sama tungumáli—og ver þig þannig gegn setrum sem að öðru leyti gætu virst vera þekkt setur sem má treysta.
| Endurhönnuð þáttun veffanga tryggir samræmda vinnslu og hindrar misnotkun. Nýi veffangarekillinn hjálpar til við að miðstýra þáttun mikilvægra gagna og eykur samkvæmni gagna alls staðar í forritinu.
|
Til að varna því að þú vafrir með ótryggum stillingum varar Internet Explorer 7 þig við með upplýsingarein þegar gildandi stillingar gætu sett þig í hættu. Á Internet-stjórnborðinu sérð þú mikilvæg atriði auðkennd með rauðum lit ef þau eru ótryggilega skilgreind. Upplýsingareinin heldur áfram að vara þig við svo lengi sem stillingin er ótrygg. Þú getur strax endurstillt öryggisstillingar Internetsins á sjálfgefna stigið "meðalhátt" með því að smella á valkostinn "Laga stillingar mínar" (Fix My Settings) í upplýsingareininni.
| Ef þú átt erfitt með að opna Internet Explorer eða komast á tiltekin vefsetur getur þú ræst Internet Explorer í hamnum "engin viðbótarforrit", þar sem aðeins bráðnauðsynleg viðbótarforrit eru virk.
|
Þessar aðgerðir fást aðeins með Internet Explorer 7 í Windows Vista:
Öryggið á oddinn -
Internet Explorer 7 í vörðum ham í Windows Vista keyrir einangraður frá öðrum forritum í stýrikerfinu. Þannig er hindrað að skaðlegur hugbúnaður skrifi neins staðar annars staðar en í tímabundnar Internet-skrár án sérstaks samþykkis notanda.
Foreldraeftirlit
Til að tryggja meira öryggi barna á Netinu geta foreldrar stýrt vafrahegðun þeirra með foreldraeftirlitinu sem er innbyggt í Windows Vista. Hægt er að fylgjast með öryggisstigi barnsins og breyta því í fjartengingu. Undir öryggisstigið heyra margar PC-aðgerðir, svo sem leikjanotkun og notkun Netsins. Foreldrar geta jafnvel farið yfir vafralotu barns eftir á og hana er ekki hægt að fjarlægja án leyfis foreldra.
|
|
 |  | Þessar endurbætur leysa mörg þau vandamál sem vefhönnuðir geta lent í við gerð mjög myndrænna og gagnvirkra vefsetra. Þessi bætti stuðningur við CSS 2.1, þar á meðal veljarar (selectors) og föst staðsetning, gerir vefhönnuðum kleift að búa til öflugri hrif (effects) án þess að nota forskrift.
| Þessi verkfærapakki hjálpar sérfræðingum í upplýsingatækni og hönnuðum að átta sig á öllu ósamræmi sem kann að vera milli vefsetra þeirra, forrita og útfærslna og Internet Explorer 7.
| Þessi rás styður gagnsæi innan PNG-myndsniðsins sem gefur betra útlit vefsetra og auðveldar uppbyggingu þeirra.
| Þú færð stuðning við allar hliðar Internet Explorer stillinga með hópareglum, sem auðvelda stórlega stjórnun innan fyrirtækis.
| Upprunalegir framleiðendur búnaðar og sérfræðingar í útfærslu geta útbúið Internet Explorer fyrirfram með sérsniðnum stillingum eða viðbótarforritum fyrir notendur.
| Þessi stuðningur endurbætir innleiðingu XMLHTTP-fyrirspurnarinnar (e. XMLHTTP Request) sem innbyggðs (native) Javascript-hlutar fyrir flókin AJAX-forrit. Internet Explorer 6 afgreiddi XMLHTTP-fyrirspurnir með ActiveX stýringu en Internet Explorer 7 sýnir XMLHTTP innbyggt (natively). Þetta eykur samhæfni í málskipan milli ólíkra vafra og gerir biðlurum kleift að samskipa og sérsníða öryggisreglur að eigin vali án þess að AJAX verði óskilvikara..
| Í samvinnu við Amazon.com var sett af viðaukum fyrir einfalda lista í RSS (RSS Simple List Extensions) sett fram fyrir RSS-samfélagið og gefið út undir Creative Commons leyfinu. Meðal annars einfalda þessir viðaukar stórlega þróun forrita sem eiga samskipti við leitarveitur sem styðja opna leit (Open Search-compatible search providers).
|
Þetta umhverfi er með fjölbreyttar aðgerðir til að hala niður, geyma og komast í RSS-strauma alls staðar í stýrikerfinu svo að fleiri notendur en nokkru sinni geta tileinkað sér RSS. Um leið og notandi gerist áskrifandi að straumi í einu forriti verður sú áskrift og allt tengt efni aðgengilegt alls staðar í stýrikerfinu fyrir öll forrit sem vilja nota það.
|
Internet Explorer 7 er með betri samhæfni við helstu vefaðgerðir en nokkurn tíma áður. Forritið styður marga nýja staðla á vefnum svo að notendur njóta þess betur að vafra og auðveldara er að þróa fyrir vefinn. Yfir hverri nýrri aðgerð í Internet Explorer 7 býðst einnig full stjórn með hópareglum, sem gerir stjórnun Internet Explorer að hægðarleik, jafnvel í stærstu fyrirtækjum.
|
|
|
|
|