This is the Trace Id: 35e1a02d3989c89b520b36ac943997a9
Fara í aðalefni Azure Copilot Windows Xbox Notendaþjónusta Windows-forrit Outlook Microsoft Teams Kaupa Xbox Xbox og leikir PC-leikir Microsoft AI Microsoft Security Azure Dynamics 365 Microsoft 365 fyrir fyrirtæki Microsoft Power Platform Windows 365 Developer Center Fylgiskjöl Microsoft Learn Microsoft Tech Community Microsoft Marketplace Visual Studio Marketplace Rewards Ókeypis niðurhal og öryggi View all

Microsoft® Office Language Accessory Pack – íslenska

Microsoft Office Language Accessory Pack – íslenska bætir við viðbótarverkfærum fyrir skjá, hjálp eða villuleitarverkfæri, allt eftir því hvaða tungumál er sett upp.

Mikilvægt! Val á tungumáli hér að neðan mun breyta öllu innihaldi síðunnar á það tungumál.

Sækja
  • Version:

    2016/2019

    Date Published:

    17.7.2019

    File Name:

    Office2016_LAP_Readme_is-is.docx

    File Size:

    21.7 KB

    Microsoft Office Language Accessory Pack – íslenska bætir við viðbótarverkfærum fyrir skjá, hjálp eða villuleitarverkfæri, allt eftir því hvaða tungumál er sett upp.
    Eftir uppsetningu standa möguleikar og tilheyrandi valkostir Microsoft Office Language Accessory Pack – íslensku til boða inni í Office-forritum og í forritinu „Tungumálastillingar Microsoft Office“.
  • Studd stýrikerfi

    Windows 10, Windows 7, Windows 8

      Nýjustu upplýsingar um kerfiskröfur má sjá í tenglinum Kerfiskröfur fyrir Office
      Microsoft Windows 8 – 32 eða 64 bita stýrikerfi
      Microsoft Windows 10 – 32 eða 64 bita stýrikerfi. (Windows 10 er eina studda stýrikerfið fyrir notendur Office 2019 sem keypt er í eitt skipti)
      Athugaðu: Gættu þess að setja upp nýjustu uppfærslupakkana fyrir stýrikerfið þitt til að tryggja sem bestan stuðning fyrir tungumálið þitt.

    Hugbúnaður Allar útgáfur af Office 2016 (eða nýrra), í pakka eða stakar, sem innihalda Microsoft Excel, Microsoft Lync, Microsoft OneNote, Microsoft Outlook, Microsoft PowerPoint eða Microsoft Word munu styðja Microsoft Office Language Accessory Pack 2016 (eða nýrra) – íslensku.
    Tölva og örgjörvi 1,6 GHz örgjörvi með SSE2-stuðningi eða meira; 4 GB RAM; 2 GB RAM (32 bita) eða meira

    Pláss á diski Fyrir utan plássið á harða diskinum sem er notað af uppsettum Office-forritum,
  • 4 GB af tiltæku plássi á harða diskinum.

  • Allar aðrar kerfiskröfur eru þær sömu og fyrir þau Office-forrit sem þú notar með Microsoft Office Language Accessory Pack – íslensku.


  • Windows málviðmótspakki Mælt er með því að nýjustu Windows málviðmótspakkarnir séu uppsettir svo að tungumálastuðningur fyrir stýrikerfið þitt og forritin sé sem bestur.

    Skjáupplausn og DPI-stillingar Margar leturgerðir eru hannaðar fyrir lestur í upplausninni 1366 x 768. Ef þú átt í vandræðum með að lesa leturgerðina fyrir tungumálið þitt skaltu uppfæra skjástillingarnar í þessa upplausn eða hærri ef nauðsynlegt er. Athugaðu: Við mælum með að þú notir Office-forritin í sjálfgefinni DPI-stillingu Windows – 96 DPI. Sé stillingin 120 DPI notuð getur það skert upplifun notanda í sumum Office-forritum þar sem svargluggar Office verða stærri.

    Valkostir landa og tungumála Auk þessa er mælt með því að allir valkostir landa og tungumála á stjórnborðinu séu stilltir á tungumál Microsoft Office Language Accessory Pack – íslensku.

  • Til að setja upp þennan Language Accessory Pack:
    1. Sæktu uppsetningarskrá Language Accessory Pack með því að smella á þennan tengilSækja uppsetningarforrit Language Accessory Pack
    2. Veldu „Keyra“ þegar niðurhalinu er lokið.
    3. Fylgdu leiðbeiningunum á skjánum til að ljúka uppsetningunni.

    Breyttu notandaviðmótinu í tungumál Language Accessory Pack
    Þegar Language Accessory Pack hefur verið settur upp er hægt að breyta tungumáli notandaviðmótsins í íslensku inni í Office-forritum eða í forritinu „Tungumálastillingar Microsoft Office“.

    Skipt um tungumál notandaviðmóts í forritinu „Tungumálastillingar“:

    1. Ræstu tungumálastillingar Office.
    2. Veldu tungumál ritunar af listanum „Velja tungumál ritunar“ og smelltu á hnappinn „Velja sem sjálfgefið“.
    3. Veldu tungumál ritunar af listanum „Velja tungumál fyrir skjá og hjálp“ og smelltu á hnappinn „Velja sem sjálfgefið“.
    4. Smelltu á hnappinn „Í lagi“.

    Skipt um tungumál notandaviðmóts inni í Office-forriti:

    1. Opnaðu „Skrá, Valkostir“ og veldu svo „Tungumál“.
    2. Veldu tungumál ritunar af listanum „Velja tungumál ritunar“ og smelltu á hnappinn „Velja sem sjálfgefið“.
    3. Veldu tungumál ritunar af listanum „Velja tungumál fyrir skjá og hjálp“ og smelltu á hnappinn „Velja sem sjálfgefið“.
    4. Smelltu á hnappinn „Í lagi“.

    Tungumálastillingarnar sem þú valdir taka gildi næst þegar þú ræsir Office-forritin þín.

    Skipt um tungumál fyrir athugun á stafsetningu
    Microsoft Office Language Accessory Pack – íslenska inniheldur hugsanlega villuleitarverkfæri fyrir tungumálið. Svona breytirðu tungumáli fyrir athugun á stafsetningu fyrir valinn texta:

    Excel: Excel notar aðalstillingu Microsoft Office fyrir tungumál ritunar til að ákvarða sjálfgefið tungumál fyrir stafsetningu. Til að breyta þessu smellirðu á „Skrá“ og svo á „Valkostir“. Smelltu á valkostinn „Villuleit“ og veldu eitt tungumálanna á listanum Tungumál orðabókar.

    Outlook, PowerPoint, Word og OneNote: Veldu textann þar sem á að athuga stafsetningu, smelltu á „Yfirfara“, smelltu á hnappinn „Tungumál“ og svo á valkostinn „Velja tungumál fyrir villuleit. Veldu tungumálið sem þú vilt nota af vallistanum og smelltu á „Í lagi“.
  • Íslenska (Ísland)
    Afþökkunartákn fyrir persónuverndarval þitt Persónuverndarval þitt
    Persónuvend vegna heilsufars neytenda Hafa samband Persónuvernd Stjórna kökum Notkunarskilmálar Vörumerki Um auglýsingar okkar