This is the Trace Id: 8ae71ce140a64a83fcc7ce6bb4cfd97f
Fara í aðalefni Azure Copilot Windows Xbox Notendaþjónusta Windows-forrit Outlook Microsoft Teams Kaupa Xbox Xbox og leikir PC-leikir Microsoft AI Microsoft Security Azure Dynamics 365 Microsoft 365 fyrir fyrirtæki Microsoft Power Platform Windows 365 Developer Center Fylgiskjöl Microsoft Learn Microsoft Tech Community Microsoft Marketplace Visual Studio Software companies Ókeypis niðurhal og öryggi View all

Microsoft Office Language Interface Pack 2010 – íslenska

Microsoft Office Language Interface Pack 2010 – íslenska býður upp á íslenskt notandaviðmót fyrir mörg Microsoft Office 2010 forrit.

Mikilvægt! Val á tungumáli hér að neðan mun breyta öllu innihaldi síðunnar á það tungumál.

  • Version:

    1

    Date Published:

    16.2.2024

    File Name:

    languageinterfacepack-x64-is-is.exe

    languageinterfacepack-x86-is-is.exe

    O14LipHelp-is-is.chm

    File Size:

    17.7 MB

    16.3 MB

    211.2 KB

    Microsoft Office Language Interface Pack 2010 – íslenska býður upp á íslenskt notandaviðmót fyrir:
    • Microsoft Office Excel 2010

    • Microsoft Office OneNote 2010

    • Microsoft Office Outlook 2010

    • Microsoft Office PowerPoint 2010

    • Microsoft Office Word 2010
  • Studd stýrikerfi

    Windows 7, Windows Vista, Windows XP Service Pack 2

    • Áskilinn hugbúnaður: Eintak af Microsoft Office 2010, í pakka eða eitt og sér, sem inniheldur eitt eða fleiri af eftirfarandi forritum: Excel, OneNote, Outlook, PowerPoint eða Word.
    • Nauðsynlegt diskpláss: Auk plássins á harða disknum sem uppsett Office 2010 forrit nota nú þegar er krafist 20 megabæta (MB) af tiltæku plássi á harða diskinum.
  • Uppsetning:
    1. Sæktu skrána LanguageInterfacePack.exe með því að smella á hnappinn Sækja (hér að ofan) og vistaðu hana á harða diskinum.
    2. Tvísmelltu á forritsskrána LanguageInterfacePack.exe á harða disknum til að ræsa uppsetningarforritið.
    3. Fylgdu leiðbeiningunum á skjánum til þess að klára uppsetninguna.
    4. Þegar uppsetningu er lokið er „readme“ skráin fyrir Microsoft Office 2010 Language Interface Pack aðgengileg á C:\Program Files\Common Files\microsoft shared\OFFICE14\LCID\LIPread.htm
    5. Uppfærsla á Office 2007 með Office 2007 Language Interface Pack eða eldri útgáfu á Office 2010 með Office 2010 Language Interface Pack er ekki studd. Ef þú vilt uppfæra grunnuppsetningu þína á Office 2007 í Office 2010 með Office 2010 Language Interface Pack skaltu:
      • Fjarlægja Office 2007 Language Interface Pack
      • Keyra uppsetningu á Office 2010 og velja uppfærsluvalkostinn.
      • Þegar uppsetningu á Office 2010 er lokið, skaltu setja upp og grunnstilla Office 2010 Language Interface Pack


      • Office-varan þín virkjuð:
      • Ef þú átt í vandræðum með að lesa allan uppsetningarkóðann í svarglugganum „Microsoft Office Activation Wizard“ eða uppsetningarkóðinn sést ekki allur rétt þegar notaður er Microsoft® Office Language Interface Pack 2010, skaltu loka leiðsagnarforritinu og skipta yfir á ensku (Bandaríkin) vöruna til að virkja Microsoft Office-vöruna.


    Leiðbeiningar um notkun:

    Ef þú vilt breyta notandaviðmótinu í tungumál Microsoft Office Language Interface Pack 2010 – íslenska skaltu fylgja þessum skrefum:

    1. Opnaðu Microsoft Office 2010 - kjörstillingar tungumála úr valmyndinni Byrja\Öll forrit\Microsoft Office\Microsoft Office Tools.  
    2. Undir Velja tungumál fyrir skjá og hjálp, undir Tungumál viðmóts skaltu velja tungumálið og smelltu svo á hnappinn Velja sem sjálfgefið.  
    3. Undir Velja tungumál ritunarskaltu velja tungumálið og smelltu svo á hnappinn Velja sem sjálfgefið.  
    4. Smelltu á hnappinn Í lagi.  

    Tungumálastillingarnar sem þú valdir taka gildi næst þegar þú ræsir Office-forrit.
    Ath.: Ekki er hægt að breyta Hjálp í tungumál Microsoft Office Language Interface Pack 2010 – íslenska. Hjálp verður alltaf á tungumáli upphaflegu uppsetningarinnar.
    Stilltu alltaf hjálpina í fellilistanum á grunntungumálið.

    Uppsetningarskráin fjarlægð:
      Fylgdu þessum skrefum á Windows XP Home eða Professional útgáfum:
    1. Lokaðu öllum forritum.
    2. Tvísmelltu á táknið Bæta við eða fjarlægja forrit í Stjórnborði Windows.
    3. Smelltu á Microsoft Office Language Interface Pack 2010 í rammanum Uppsett forrit og smelltu svo á hnappinn Fjarlægja.  
    4. Fylgdu leiðbeiningunum á skjánum.

      Fylgdu þessum skrefum á Windows Vista eða Windows 7:
    1. Lokaðu öllum forritum.
    2. Tvísmelltu á táknið Forrit og aðgerðir í Stjórnborði Windows.
    3. Í valkostinum Fjarlægja eða breyta forriti skaltu smella á Microsoft Office Language Interface Pack 2010 – íslenska í rammanum Uppsett forrit og velja svo valkostinn Fjarlægja.  
    4. Fylgdu leiðbeiningunum á skjánum.



    Ef þú sérð ekki innihald CHM-skrárinnar eftir niðurhal geturðu framkvæmt eftirfarandi skref sem gera þér kleift að sjá innihaldið:
    1. Opnaðu möppuna sem þú vistaðir CHM-skrána í.
    2. Hægrismelltu á CHM-skrána og veldu Eiginleikar úr valmyndinni sem birtist.
    3. Á flipanum Almennt skaltu smella á hnappinn Opna og síðan á Í lagi.
    4. Tvísmelltu á CHM-skrána og þú getur séð innihald hennar.