This is the Trace Id: 9add3763b7a804fdb9590ce6d681b93b

PowerPoint Mobile

Microsoft PowerPoint Mobile er besta forritið til að skoða, sýna og búa til kynningar á Windows-símum og -spjaldtölvum (með 10,1 tommu eða minni skjá). *12. janúar 2021 mun þetta forrit ekki lengur njóta stuðnings í símum sem nota Windows 10 Mobile. Frekari upplýsingar eru á https://aka.ms/OfficeWindows10MobileEOS.* *** Til að búa til og breyta kynningum á borðtölvum, fartölvum, stórum spjaldtölvum og með Continuum fyrir síma þarf Office 365-áskrift. Frekari upplýsingar koma fram í eftirfarandi kröfum. *** NOTAÐU KYNNINGAR Á FERÐINNI
  • Æfðu þig fyrir kynningu eða flyttu kynninguna með símanum eða spjaldtölvunni.
  • Teiknaðu á skyggnurnar á meðan þú ert að kynna til að undirstrika aðalatriði.
SKOÐAÐU OG BREYTTU ÞEGAR ÞÚ ERT Á FERÐINNI
  • Með samþættingu við OneDrive, SharePoint og Dropbox hefurðu alltaf aðgang að skránum þínum.
  • Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því að vista. Þegar þú gerir breytingar í spjaldtölvunni eða símanum vistar PowerPoint þær fyrir þig.
  • Deildu kynningum með nokkrum skrefum og bjóddu öðrum að fara yfir þær.
  • Margir geta unnið saman og breytt kynningum samtímis.
  • Finndu réttu skipunina í hvelli. Með „Segðu mér“ finnurðu það sem þú leitar að.
BÚÐU TIL SKJÖL
  • Notaðu símann sem tölvu til að skrifa og fara yfir kynningar á stórum skjá.
  • Settu verkefnin þín í gang með fallega hönnuðum þemum.
  • Notaðu kunnuglega valkosti fyrir snið.
  • Útlit kynninga helst upprunalegt óháð því hvaða tæki þú notar.
KRÖFUR Þessi útgáfa af PowerPoint er sérhönnuð fyrir farsíma og spjaldtölvur (með skjástærð 10,1 tommu eða minni). Á þessum tækjum er hægt að skoða, búa til og breyta PowerPoint-kynningum ókeypis. Til að nota ítarlega eiginleika þarf gilda Office 365-áskrift. Frekari upplýsingar er að finna á www.office.com/information. Hægt er að skoða kynningar ókeypis í stærri spjaldtölvum, fartölvum og borðtölvum. Til að búa til og breyta kynningum þarf gilda Office 365-áskrift. Með Office 365 fylgja nýjustu skjáborðsútgáfur af Word, Excel, PowerPoint, OneNote og Outlook – sem mælt er með fyrir borðtölvur og fartölvur. Þú getur skráð þig fyrir Office 365 í forritinu og fengið einn mánuð frían þegar þú skráir þig í fyrsta sinn. * Continuum fyrir síma er aðeins í boði á völdum Windows 10-úrvalssímum. Aukabúnaður sem er samhæfur Continuum þarf að vera til staðar ásamt ytri skjá sem styður HDMI-inntak.