Með Office Lens geturðu skorið til og endurbætt myndir af tússtöflum og skjölum og gert þær læsilegar. Þú getur notað Office Lens til að breyta myndum í PDF-, Word- og PowerPoint-skjöl og einnig vistað myndirnar í OneNote eða á OneDrive.
Að nota Office Lens er eins og að vera með skanna í vasanum. Göldrum líkast breytir forritið glósum á tússtöflu eða krítartöflu yfir í stafrænar upplýsingar. Núna geturðu alltaf fundið mikilvæg skjöl eða nafnspjöld. Rissaðu upp þínar eigin hugmyndir og smelltu af þeim mynd til síðari nota. Týndar kvittanir og minnismiðar heyra sögunni til!
Með því að setja forritið upp samþykkir þú eftirfarandi skilmála: http://aka.ms/olenswindowsterms.
Aðstæður:
– Smelltu mynd af tússtöflu eða krítartöflu, skerðu hana til og deildu punktunum af fundinum með vinnufélögunum.
– Gerðu stafræn afrit af prentuðum skjölum, nafnspjöldum eða veggspjöldum og skerðu þau snyrtilega til.
– Stafakennsl eru notuð til að bera sjálfkrafa kennsl á prentaðan og handskrifaðan texta og þar með getur þú leitað að orðum á myndum, afritað þau og unnið með textann.