Microsoft Word Mobile er besta forritið til að skoða, breyta og búa til skjöl á Windows-símum og -spjaldtölvum (með 10,1 tommu eða minni skjá). *12. janúar 2021 mun þetta forrit ekki lengur njóta stuðnings í símum sem nota Windows 10 Mobile. Frekari upplýsingar eru á https://aka.ms/OfficeWindows10MobileEOS.*
*** Til að búa til og breyta skjölum á borðtölvum, fartölvum, stórum spjaldtölvum og með Continuum fyrir síma þarf Office 365-áskrift. Frekari upplýsingar koma fram í eftirfarandi kröfum. ***
ÞÆGILEGT AÐ LESA
• Nýtt lestraryfirlit gerir það auðveldara að lesa löng skjöl í símum og spjaldtölvum.
• Pikkaðu á litlar myndir eða töflur til að sjá smáatriði á öllum skjánum.
• Færðu efni af vefnum beint inn í Word-skjölin þín með snjallleit.
SKOÐAÐU OG BREYTTU SKJÖLUM ÞEGAR ÞÚ ERT Á FERÐINNI
• Með samþættingu við OneDrive, SharePoint og Dropbox hefurðu alltaf aðgang að skránum þínum.
• Svaraðu athugasemdum og gerðu breytingar í snatri með einni snertingu.
• Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því að vista. Þegar þú breytir skjölum í spjaldtölvunni eða símanum vistar Word breytingarnar fyrir þig.
• Deildu skjölum með nokkrum skrefum og bjóddu öðrum að fara yfir þau.
• Margir geta unnið saman og breytt skjölum samtímis.
• Finndu réttu skipunina í hvelli. Með „Segðu mér“ finnurðu það sem þú leitar að.
BÚÐU TIL SKJÖL
• Notaðu símann sem tölvu til að skrifa og fara yfir skjöl á stórum skjá.
• Notaðu fallega hönnuð nútímaleg sniðmát til að koma verkefninu af stað.
• Notaðu kunnuglega valkosti fyrir snið og útlit til að koma hugmyndum þínum á framfæri.
• Skjalasnið og útlit haldast upprunaleg og líta vel út – óháð því hvaða tæki þú notar.
KRÖFUR
Þessi útgáfa af Word er sérhönnuð fyrir farsíma og spjaldtölvur (með skjástærð 10,1 tommu eða minni). Á þessum tækjum er hægt að skoða, búa til og breyta Word-skjölum ókeypis. Til að nota ítarlega eiginleika þarf gilda Office 365-áskrift. Frekari upplýsingar er að finna á www.office.com/information.
Hægt er að skoða skjöl ókeypis í stærri spjaldtölvum, fartölvum og borðtölvum. Til að búa til og breyta skjölum þarf gilda Office 365-áskrift. Með Office 365 fylgja nýjustu skjáborðsútgáfur af Word, Excel, PowerPoint, OneNote og Outlook – sem mælt er með fyrir borðtölvur og fartölvur. Þú getur skráð þig fyrir Office 365 í forritinu og fengið einn mánuð frían þegar þú skráir þig í fyrsta sinn.
* Continuum fyrir síma er aðeins í boði á völdum Windows 10-úrvalssímum. Aukabúnaður sem er samhæfur Continuum þarf að vera til staðar ásamt ytri skjá sem styður HDMI-inntak.